Aðalfundur EBAK

Aðalfundur Félags eldri borgara á Akureyri verður haldinn miðvikudaginn 30. mars 2016 í sal félagsins að Bugðusíðu 1.

Aðalfundur Félags eldri borgara á Akureyri verður haldinn miðvikudaginn 30. mars 2016 í sal félagsins að Bugðusíðu 1. Fundurinn hefst kl. 13:30.

Á dagskrá fundarins verða lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf. Tillaga stjórnar um lagabreytingar og tillaga uppstillinganefndar um stjórn og nefndir liggja frammi á skrifstofu félagsins frá 16. mars 2016.

Félagsmenn geta frá þeim tíma komið með tillögu um aðra fulltrúa í stjórn eða nefndir. Tillögu um breytingar þarf að skila til stjórnar félagsins eigi síðar en 22. mars 2016.

Á fundinum verða kaffiveitingar í boði félagsins.

Stjórn félagsins.