Eddan í 40 ár

Eddan - líf og list Eddu Björgvins í 40 ár.

Eddan - líf og list Eddu Björgvins í 40 ár. Edda býður til veislu í Hofi á Akureyri 24. og 25. apríl n.k. Edda lítur yfir farinn veg og ferilinn, væntingar, vonbrigði, ástir og örlög leikkonu á besta aldri. Við lofum stórkostlegri skemmtun, þar sem Eddan fer á kostum, ásamt úrvalsleikurunum, Gunnari Hanssyni og Berþóri Pálssyni. Handrit er eftir Björk Jakobsdóttur og Eddu Björgvinsdóttur. Leikstjórn er í höndum Gunnars Helgasonar.

Félögum í Félagi eldri borgara á Akureyri er boðinn afsláttur af miðaverði á sýninguna. Fullt verð er kr. 4.900 en til eldri borgara er verð miðans kr. 3.800. Þeir sem vilja nýta sér þetta hafi samband við miðasöluna í HOfi.