Ferðakynning

Eftirtaldar ferðir voru kynntar fyrir árið 2017.

1. Haustferðin  frá Akureyri til eyjunnar La Palma  8.-29. nóvember. Birgir frá Heimsferðum kynnti ferðina. Hann tekur við bókunum og gefur nánari upplýsingar.

2. Leikhúsferð þann 22. apríl í Freyvangsleikhúsið, sem er að sýna leikritið -Góðverkin kalla-  Fararstjóri er Hulda Eggertsdóttir, sem        einnig tekur við bókunum.

3. Fjögura daga ferð um Vestfirði  dagana 19.-22. júní, fararstjórar Ásgerður Snorradóttir og Hulda Eggertsdóttir, sem einnig taka við bókunum.

4. Dagsferð um Skaga þann 12. júlí, fararstjórar Rafn Sveinsson og Hákon Hákonarson, sem einnig taka við bókunum.

5. Þriggja daga ferð til Borgarfjarðar og um Vatnsnes 9.-11. ágúst fararstjórar Karl Jörundsson og Karl Steingrímsson, sem taka einnig við bókunum.

Ferðanefndin.

--- Fararstjórar gefa einnig nánari upplýsingar um ferðirnar. ---