Ferðakynning ársins 2016

Ferðakynning verður í Bugðusíðu 1 þriðjudaginn 8. mars nk. kl. 14:00

Ferðanefnd félagsins heldur kynningarfund í Bugðusíðu 1 þriðjudaginn 8. mars nk. kl. 14:00. Kynntar verða ferðir félagsins á árinu 2016. 

1. Innanlandsferðir:
    Ferð til Stykkishólms og Snæfellsness dagana 22.-25. maí (4 dagar). Gisting á Hótel Stykkishólmur. 
    Ferð á Strandir 16.-18. ágúst (3 dagar). Gist á Hótel Laugarhóli.
    Dagsferð um Þingeyjarsýslur um miðjan júlí.

2. Vorferð til Costa Brava-LLoret de Mar 16.-29. apríl.

3. Haustferð til Benidorm á Spáni 18. september til 9. október, beint flug frá Akureyri. Gist á Hótel Melia           Benidorm.

4. Leikhúsferð.

    Kaffi og kleinur

    Ferðanefndin