Frá fræðslunefnd

Þann 19. maí n.k. kl. 13.00 verður haldið málþing í Háskólanum á Akureyri. Fyrirlesarar munu ma. fræða okkur um gildi hreyfingar og mataræðis og hvað við getum gert sjálf til að efla okkur. Kl. 10.30 munu þjálfarar frá Líkamsræktinni Bjargi vera með hreyfistund fyrir utan skólann. Kl. 12.30 syngur kór eldri borgara Í fínu formi nokkur lög. Aðgangur er heimill öllum eldri borgurum og er ókeypis. Þetta er í þriðja sinn sem slíkt málþing er haldið og hefur aðsókn alltaf verið mjög góð.