Frá fræðslunefnd

11. febrúar 2014 hefst námskeið í ensku fyrir byrjendur. 17. febrúar flytur Logi Már Einarsson erindi um Akureyri í máli og myndum.

11. febrúar 2014. Námskeið hefst í ensku, fyrir byrjendur í umsjón Heiðdísar Höllu Bjarnadóttur kennara við MA., sjá upplýsingar í Dagskránni.

17. febrúar leitar Logi Már Einarsson svara við spurningunni ,, Af hverju er Akureyri eins og hún er?"

Erindið hefst kl. 13.30 í Bugðusíðu 1, allir eru velkomnir og heitt verður á könnunni.