Frá Spékoppum

Spékoppar, leik- og framsagnarhópur innan Félags eldri borgara tekur þátt í afmæli vegna 100 ára kosningaréttar kvenna.

Spékoppar munu koma fram í Samkomuhúsinu á Akureyri þ. 20 júní 2015 kl. 15 og flytja dagskrá sem helguð er þrautseigju og dugnaði kvenna á síðustu öld. Þeir munu minnast 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna í samræðum, ljóðum og lestri. Það er Saga Jónsdóttir leikkona sem hefur leiðbeint hópnum undanfarið.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.