Fundur um skýrslu - farsæl öldrun -

Nú liggur fyrir skýrsla um niðurstöður framtíðarþings um farsæla öldrun

Nú liggur fyrir skýrsla um niðurstöður framtíðarþings um farsæla öldrun sem haldið var 18. maí sl. í Háskólanum á Akureyri. Af því tilefni er boðað til sérstaks umræðufundar um niðurstöður og tillögur þingsins. Á fundinnum munu ýmsir aðilar flytja stutt ávörp og bregðast við helstu niðurstöðum framtíðarþingsins.

Fundurinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri, föstudaginn 13. nóv. kl. 14:00-16:00. 

a) Kynntar verða helstu niðurstöður framtíðarþingsins. b) Ýmsir aðilar bregðast við helstu niðurstöðum og kynna sína sýn. c) Kaffi. d)Umræður.

Þátttakendur sem sátu framtíðarþingið,  Akureyringar og nærsveitamenn eru hvattir til að koma og kynna sér niðurstöður og taka þátt í umræðum. Skýrsluna má nálgast á heimasíðunni WWW.hlid.is  HG