Góð mæting á kynningu í Bugðusíðu 1

Þann 3. febr. sl. efndi stjórn EBAK til kynningar á boccia, snóker og krullu í Bugðusíðu1. Góð mæting var á kynninguna, en alls mættu 14 konur og 13 karlar. Hver grein fékk sinn tíma eða ca 40 mínútur og gátu þátttakendur tekið þátt og spilað allar greinarnar. Almenn ánægja var með þessa kynningu og vill stjórn félagsins þakka leiðbeinendum öllum fyrir þeirra framlag og þátttakendum fyrir komuna.

Stjórn félagsins mun á næstunni auglýsa hvar og hvenær hægt verði að spila boccia, snóker og krullu á vegum félagsins. HGun