Flýtilyklar
Gönguklúbbur EBAK
24.08.2020
Fimmtudaginn 27. ágúst verður genginn svokallaður Beitarhúshringur í Vaglaskógi. Leiðin er mjög greiðfær, tæpir 4 km. að lengd. Förum rólega því meiri hluti leiðarinnar er aðlíðandi halli upp í móti, hvergi bratt. Leiðin niður er nokkuð brött á köflum. Verum klædd eftir veðri, í góðum gönguskóm og með stafi ef við viljum. Höfum með okkur nesti og nóg af vatni. Veðurspáin er góð.
Lagt verður af stað frá Bugðusíðu 1 kl. 10:00. Heimilt er að safnast saman í bíla, ef allir í viðkomandi bíl eru með grímu. Virðum fjarlægðarmörkin.