Jólahlaðborð í Mývatnssveit

Jólahlaðborð og gisting á Hótel Seli í Mývatnssveit 7. og 8. desember 2016

Á vegum Félags eldri borgara á Akureyri verður farin hópferð til Mývatnssveitar dagana 7. og 8. desember n.k. Lagt verður af stað frá Akureyri kl. 11:00,  7. desember og komið til baka um miðjan dag daginn eftir.

Verð kr. 18.000.00 (ekki posi). Innifalið: rúta fram og til baka, jólahlaðborð, dans, gisting og morgunverður. Ferðin í fyrra tókst með afbrigðum vel og komust færri að en vildu. Aðgöngumiðar verða seldir í Bugðusíðu 1 mánudaginn 7. nóvember frá kl. 13:00 - 15:00. Farið verður í Jarðböðin fyrri daginn.

Ferða- og skemmtinefnd EBAK