Skrifstofa félagsins í Bugðusíðu 1

Skrifstofa félagsins í Bugðusíðu 1 var flutt í herbergið við hliðina á eldhúsinu 9. sept. sl.

Skrifstofa félagsins í Bugðusíðu 1 var  flutt í herbergið við hliðina á eldhúsinu inn af salnum 9. sept. sl. Þessi flutningur á skrifstofunni var samþykktur á stjórnarfundi félagsins 6. sept. sl. Þetta er gert að beiðni Akureyrarbæjar og til reynslu í eitt ár. Ástæðan fyrir breytingunni er sú að skapa betri aðstöðu fyrir almenna handmennt í þeim þremur herbergjum sem eru í suðausturhorni hússins þar sem skrifstofan var. Viðvera stjórnarmanna á miðvikudögum kl. 14-16 verður í skrifstofu félags-miðstöðvarinnar framan við salinn.  Halldór