Boccia, snóker og krulla.

Langar þig að spila boccia - snóker - krullu?
Félag eldri borgara á Akureyri efnir til kynningar á boccia, snóker,
og krullu fyrir félagsmenn sína og aðra eldri borgara á Akureyri
bæði konur og karla. Kynningin fer fram í Bugðusíðu 1 föstudaginn
3. febrúar n.k. og stendur yfir frá kl. 10:00 til 12:30.
Hver grein fær sinn tíma þar sem farið er yfir leikreglur og helstu þætti
leiksins. Þá gefst þátttakendum tækifæri til að prufa tæki og tól eftir
því sem tíminn leyfir.
Félagið hyggst efna til námskeiða í framhaldi kynningarinnar reynist
áhugi fyrir því hjá þátttakendum og öðrum. Námskeiðin verða auglýst
síðar og þátttaka skráð með símtali eða á netinu.
Hvetjum félagsmenn og aðra eldri borgara til að mæta.
Stjórn félagsins.