Spékoppar komnir aftur á stjá.

Framsagnar og leiklistahópurinn Spékoppar verður með dagskrá um Káin.

Dagskráin um Káin verður í Bugðusíðu 1, 26. janúar kl. 10.30 og í Víðilundi 22, föstudaginn 30. janúar kl. 14.

Við kynnumst lífi Káins, flutt verða ljóð eftir hann og sögur sagðar af honum, auk þess sem vísur verða sungnar eftir hann. Dagskráin tekur um hálfa klukkustund.

Við munum einnig fara í Lögmannshlíð og í Hlíð.