Flýtilyklar
Starfsskýrsla og fundargerðir.
Ágætu félagar.
Undir liðnum Félagsstarf er komið nýtt atriði: Skýrslur. Þar er hægt að sjá skýrslu um starf EBAK 2016-2017.
Undir liðnum Fundargerðir og Fundargerðir - annað er búið að setja inn fundargerð síðasta landsfundar Landssambands eldri borgara og einnig fundargerðir Öldungaráðs Akureyrarbæjar. Meira efni er nýlega komið inn.
Yfirleitt sendum við nýjar fréttir á póstlistann ykkar svo endilega bætið netfangi ykkar á hann ef þið fáið fréttirnar ekki líka í tölvupósti. Annað efni fer ekki á póstlistann, þannig að þið skulið endilega fylgjast vel með heimasíðunni.
Hvetjum til að þið gerist meðlimir í Facebook hópnum okkar, EBAK Félag eldri borgara á Akureyri og setjið hann í uppáhald þannig að þið sjáið alltaf þegar nýtt efni kemur þar inn, bæði frá umsjónarmönnum, nefndaformönnum og öðrum sem setja þar inn efni.
Endilega nýtið ykkur upplýsingarnar á síðunum og bendið öðrum sem komnir eru yfir sextugt á þær.
Góðar kveðjur.
Hallgrímur Gíslason.