Flýtilyklar
Sumaropnun í Bugðusíðu 1
Félagsmiðstöðin í Bugðusíðu 1 verður opin á vegum Félags eldri borgara á Akureyri í sumar. Fyrsti opnunardagur verður föstudaginn 2. júní.
Opið verður eftirfarandi daga:
Mánudaga: Opið hús kl. 09:00-12:00
Pálínukaffi kl. 10:30-11:30
Miðvikudaga: Almenn spilamennska kl. 13:00-16:00. Kaffi og kleinur selt í hléi.
Föstudaga: Opið hús kl. 09:00-12:00.
Stólajóga 10:30-11:45 (frítt) jógakennari Helga Haraldsdóttir.
Heitt á könnunni, blöðin o.fl.
Allir 60 ára og eldri ávallt velkomnir.
Athugið að lokið verður í júlí.
Opnað verður aftur miðvikudaginn 2. ágúst og verður dagskrá auglýst nánar þegar nær dregur.
Bugðusíðunefndin.
Geymið auglýsinguna.