Tónleikar

Tónleikar í Hofi laugard. 7. mars 2015 kl. 20:00. Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen snúa nú aftur með tónleikana sína „Við eigum samleið - Lögin sem allir elska.“ 20% afsláttur fyrir eldri borgara.

VIÐ EIGUM SAMLEIÐ-LÖGIN SEM ALLIR ELSKA

Vegna fjölda áskoranna ætla Sigga, Guðrún og Jógvan að endurtaka leikinn í Salnum með þessum frábæru tónleikum ásamt því að fara með þá norður í Hof í fyrsta sinn.

Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen snúa nú aftur með tónleikana sína „Við eigum samleið - Lögin sem allir elska.“ Þau hafa þegar fyllt Salinn í Kópavogi þrisvar sinnum og seldist upp á skömmum tíma.

Á tónleikunum er afslöppuð og létt stemning, því ekki aðeins syngja þau lögin sem allir elska og þekkja, heldur segja þau líka skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum, sögur úr bransanum og síðast en ekki síst gera þau svo stólpagrín hvert að öðru.

Hérna eru á ferðinni einstaklega ljúfir og skemmtilegir tónleikar með gömlu góðu sönglögunum sem allir þekkja og elska. Á dagskránni eru meðal annars lögin: Heyr mína bæn, Ég er komin heim, Til eru fræ, Kata rokkar, Ég veit þú kemur, Dagný ásamt fleiri perlum úr íslenskri dægurlagasögu.

Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. 

Hljóðfæraleikarar:



Ingi Björn Ingason á bassa


Pálmi Sigurhjartarson á flygil


Vignir Snær Vigfússon á gítar

Til að nýta afslátt aldraðra (20% af kr. 5.500) þarf að hringja beint í miðasöluna í Hofi, ekki er hægt að bóka miða m/afslætti í gegnum netið.