Flýtilyklar
Upplýsingagjöf til aldraðra og aðstandenda þeirra.
Upplýsingagjöf til eldra fólks og aðstandenda
Starfsfólk öldrunarþjónustu mun veita upplýsingar og ráðgjöf um ýmis úrræði og þjónustu fyrir eldra fólk á Akureyri. Ráðgjafar verða í félagsmiðstöðvunum í Bugðusíðu aðra hverja viku á miðvikudögum og í Víðilundi aðra hvora viku á föstudögum. Er þetta liður í að bæta upplýsingagjöf til eldra fólks og aðstandenda.
Ekki þarf að panta tíma.
Bugðusíða Víðilundur
Miðvikudagar kl:16:00 – 18:00 Föstudagar kl: 10:00 – 12:00
27. september 6. október
11. október 20. október
25. október 3. nóvember
8. nóvember 17. nóvember
22. nóvember 1. desember
6. desember 15. desember