Flýtilyklar
Vatnsnes - Borgarfjörður
15.06.2017
Þriggja daga ferð á vegum Félags eldri borgara á Akureyri til Borgarfjarðar 9. til 11. ágúst í sumar.
Farið verður um Vatnsnes á suðurleið ásamt leiðsögumanni úr héraði.
Heilsdags skoðunarferð verður farin um Borgarfjarðardali með staðkunnugum leiðsögumanni.
Á norðurleið verður farið um Laxárdalsheiði.
Gist verður á tveggja manna herbergjum á Hótel Hvanneyri.
Ennþá eru sæti laus í ferðina en síðasti dagur til að bóka sig er mánudagurinn 19. júní.
Allar nánari upplýsignar gefa Karl Steingrímsson í síma 897-2414 og Karl Jörundsson í síma 898-7369
Ferðanefndin.