Viltu koma að pútta

Félag eldri borgara á Akureyri býður félagsmönnum upp á golftíma í pútti í Íþróttahöllinni......

"Viltu koma að pútta" - Félag eldri borgara býður félagsmönnum upp á golftíma í pútti í Íþróttahöllinni í samstarfi við Golfklúbb Akureyrar, eins og gert var sl. vetur.

Tímafjöldi og fyrirkomulag fer eftir fjölda þátttakenda og samkomulags við GA. Leiðbeinendur "pútterar" verða á staðnum fyrir þá sem þess óska.

Þeir sem vilja skrá sig eða fá upplýsingar hafi samband við Dóru S Jónasdóttur í síma 4622646 eða 6947248 fyrir 15. okt. 2016

Stjórnin