Vordægur við Mývatn

Í apríl mun Sel Hótel í Mývatnssveit bjóða upp á skemmtilega dvöl og dagskrá fyrir kátt fólk 60 ára og eldra. Þetta er frábært tækifæri til að gleðjast með góðu fólki víðsvegar af landinu og láta stjana við sig í mat og drykk. Dagskráin er fjölbreytt og valinkunnir menn sem leiða hana. Farið verður í ferðir með leiðsögn um sveitina fögru og um nærliggjandi sveitir. Á kvöldin verður spilað, sungið og sagðar sögur. Komið og njótið ykkar í fallegu umhverfi Mývatns. Þann 28. janúar sl. komu fulltrúar frá Sel Hótel til Akureyrar og kynntu þetta tilboð á fundi með fulltrúum úr stjórn og ferðanefnd Félags eldri borgara. Nánari upplýsinar er að finna á vefslóðinni: http://www.myvatn.is/eldriborgara-ferd