Fréttir

Frá Fræðslunefnd

Ferð á skáldaslóðir sem fyrirhuguð var í vor geymist til haustsins. Líklegt er að hún verði farin í september ef áhugi verður hjá félagsmönnum.
Lesa meira

Sumaropnun í Bugðusíðu 1

Á vegum Félags eldri borgara á Akureyri verður félagsmiðstöðin í Bugðusíðu opin sem hér segir:
Lesa meira

Frá Fræðslunefnd

Nú hefur verið sett upp Facebókasíða á vegum Fræðslunefndar og heitir hún EBAK fræðslunefnd. Í gær voru settar inn myndir frá málþinginu. Njótið vel.
Lesa meira

Frá Fræðslunefnd

Þá er lokið þriðja málþingi sem HA og Ebak standa fyrir. Dagurinn hófst með hreyfistund í morgun þar sem þjálfarar frá Bjargi Ósk Jórunn og Eva Reykjalín liðkuðu þá félagsmenn sem komu (rúmlega 20 manns). Undir dynjandi sumbatakti framdi fólk miklar mjaðmasveiflur og brenndi líklega mörgum hitaeiningum. Þetta var skemmtileg stund. Kl. 12.30 hóf kórinn Í fínu formi upp raust sína og söng eins og honum einum er lagið í hálfa klukkustund. Flottur kór það. Kl. 13.00 var málþingið sett og var mæting ótrúlega góð, um 250 manns voru í salnum þegar flest var. Gaman var að sjá að fólk kom frá Siglufirði, Sauðárkróki, Húsavík og víðar. Létt var yfir fólki og erindin voru fróðleg og sett fram á mannamáli. Meðal þess sem skoðað var: var hvað vatnið gerir fyrir líkamann innan frá, hvernig takast má á við starfslok á góðan hátt. Hvað er til ráða gagnvart sykursýki fullorðinna, svarað var spurningunni hvað er ökumat? Spékoppar kitluðu hláturtaugarnar eins og þeir kunna best með innsýn í akstursvandamál sem upp geta komið, þegar menn verða litblindir, sjóndaprir og heyrnarlausir en keyra samt. Í hléi var leikin notaleg tónlist af Núma Adolfssyni og Pálma Björnssyni og Ebak bauð upp á kleinur og kaffi. Eftir hlé veltu nokkrir eldri borgarar fyrir sér sannleiksgildi fjögurra íslenskra málshátta. En niðurstaða fékkst ekki í þeim öllum. Talað var um leiðir til efla sig og reyna að koma í veg fyrir heilabilun. Þar og til varnar sykursýkinni er hreyfingin aðalatriði. Síðasta erindið flutti Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sálfr. og eldri borgari og ræddi um manns eigin hugsun sem við getum breytt og það að þora að takast á við nýjar áskoranir. Þetta erindi var fallegt, hjartnæmt og áhrifamikið. Að lokum töluðu Haukar tveir, Ingibergsson form. Landsambands eldri borgara og Halldórsson form. Félags eldri borgara á Akureyri og þökkuðu fundargestum fyrir daginn.
Lesa meira

Frá fræðslunefnd

Þann 19. maí n.k. kl. 13.00 verður haldið málþing í Háskólanum á Akureyri. Fyrirlesarar munu ma. fræða okkur um gildi hreyfingar og mataræðis og hvað við getum gert sjálf til að efla okkur. Kl. 10.30 munu þjálfarar frá Líkamsræktinni Bjargi vera með hreyfistund fyrir utan skólann. Kl. 12.30 syngur kór eldri borgara Í fínu formi nokkur lög. Aðgangur er heimill öllum eldri borgurum og er ókeypis. Þetta er í þriðja sinn sem slíkt málþing er haldið og hefur aðsókn alltaf verið mjög góð.
Lesa meira

Ferðir Félgs eldri borgara ársins 2016

Um ferðir ferðanefndar Félags eldri borgara ársins 2016
Lesa meira

Frá Fræðslunefnd

Nú er hafið námskeið í tölvulæsi eldri borgara. Það fer fram í Menntaskólanum og er á miðvikudögum kl. 12.30. Það eru eftir tvö skipti og nokkur pláss eru laus. Það eru þriðju bekkingar MA sem kenna okkur á ýmis tölvutæki og best er að koma með sitt tæki.
Lesa meira

Tillögur uppstillinganefndar til aðalfundar 2016

Tillögur uppstillinganefndar til aðalfundar 30. mars 2016 í stjórn og nefndir Félags eldri borgara.
Lesa meira

Aðalfundur EBAK

Aðalfundur Félags eldri borgara á Akureyri verður haldinn miðvikudaginn 30. mars 2016 í sal félagsins að Bugðusíðu 1.
Lesa meira

Vorhátíð eldri borgara 2016.

Hin árlega Vorhátíð félags eldri borgara á Akureyri verður haldin að Bjargi, Bugðusíðu laugardaginn 30. apríl og hefst kl. 14:30.
Lesa meira